<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, október 29, 2005

Æfingar fyrir vikuna 31/10 - 5/11

Mánudagur 31. október - Body Pump kl. 19:30
Þriðjudagur 1. nóvember - Fylkisvöllur kl. 20:00-21:30
Miðvikudagur 2. nóvember - Body Pump kl. 19:30
Fimmtudagur 3. nóvember - Fylkisvöllur kl. 17:30-19:00
Laugardagur 5. nóvember - Fylkisvöllur kl. 12:30 - 14:00. Mætið með hlaupaskó og takkaskó.

Munið að tilkynna forföll tímanlega.

Kv. þjálfarar

Mætingin komin á þjálfarabloggið!!!!!!

Skoðið þetta og veltið aðeins fyrir ykkur hvað ykkur finnst um þetta!!!!

Kv,
Þjálfarar

mánudagur, október 24, 2005

Til hamingju með Haustmótið 2. flokkur!!!

Annars er dagskráin fyrir vikuna þessi:

Mánudagur, 24/10 - Body Pump kl. 19:30
Þriðjudagur, 25/10 - Hlaup og stöðvarleikfimi kl. 17:30 í Egilshöll.
Miðvikudagur, 26/10 - Body Pump kl. 19:30
Fimmtudagur, 27/10 - Hlaup og stöðvarleikfimi kl. 17:30 í Egilshöll.
Föstudagur, 28/10 - 2. fl. leikur gegn HK/Víking kl. 19:30 í Egilshöll.

Sýnið góða mætingu alla 4 dagana!!

Kv. Þjálfarar

sunnudagur, október 16, 2005

Planið fyrir vikuna:

Mánudagur, 17. okt. - Body Pump kl. 19:30
Þriðjudagur, 18. okt. - Leikur hjá 2. fl. gegn KR kl. 19:30. Mæting á KR-völlinn kl. 18:30. Eftirfarandi leikmenn hlaupa sjálfir í 30-40 mín (Elín, Guðný Jóns, Guðný Árna, Ólöf Péturs, Kolla, Helena, Kristín, Vala og Sóley).
Miðvikudagur, 19. okt. - Body Pump kl. 19:30
Fimmtudagur, 20. okt. - Fótbolti í Egilshöll 10:00-11:00. Mæting kl. 9:40 í upphitun.
Föstudagur, 21. okt. - Leikur hjá 2. fl. gegn Val kl. 19:15. Mæting í Egilshöllina kl. 18:15.

Munið að tilkynna forföll tímanlega.

Kv. Þjálfarar

mánudagur, október 10, 2005

ATHUGIÐ!!!

Body Pump byrjar í kvöld, mánudag, kl. 19:30 í Orkuverinu!!! Mætið 10-15 mín fyrr til að skipta um föt og gera ykkur tilbúin því tíminn byrjar á slaginu 19:30! Það er því ekki útihlaup eða stöðvarleikfimi í kvöld.

Dagskrá vikunnar verður því eftirfarandi:

Mánudagur - Body Pump í Orkuverinu kl. 19:30-20:30
Þriðjudagur - 2. fl. leikur kl. 19:00 (mæting kl. 18:00). Þeir sem ekki spila hlaupa sjálfir í 35-40 mín.
Miðvikudagur - Body Pump í Orkuverinu kl. 19:30 - 20:30
Fimmtudagur - Frí
Föstudagur - 2. fl. leikur kl. 17:30 (mæting kl. 16:30). Þeir sem ekki spila hlaupa sjálfir í 35-40 mín.
Laugardagur - Frí
Sunnudagur - Frí

Kv.

Þjálfarar

sunnudagur, október 09, 2005

Æfing mánudag, 10. október kl. 17:30. Hlaup úti (eða inni ef veður er leiðinlegt) og stöðvarleikfimi. Leikur hjá 2. fl. á þriðjudag. Nánar um það á morgun.

Þjálfarar

föstudagur, október 07, 2005

Egilshöllin er lokuð í dag. Þið hlaupið sjálfar í dag, í minnst 35-40 mínútur eða í kringum 4-5 km. Frí um helgina en æfing á mánudaginn. Við komum nánari upplýsingum á bloggið um helgina.

Á sunnudaginn byrja æfingar hjá 8. fl. og munu Kristín F., Helga og Tinna mæta. Elli mun hafa yfirumsjón með æfingunni.

Takk

Þjálfarar

miðvikudagur, október 05, 2005

Næsta æfing er á morgun, fimmtudag 6. október kl. 17:30. Mæting í Egilshöll og hlaup úti (eða inni ef veður er leiðinlegt). Stöðvarleikfimi eftir hlaup.

Vonum að Body Pump hefjist í næstu viku.

Fyrstu æfingar 8. fl. hefjast á sunnudag. Þar sem við sjáum um þjálfun flokksins þá þurfa 3 úr hópnum okkar að mæta en Elli mun hafa yfirumsjón með þessu á sunnudaginn. Við göngum frá þessu á morgun ásamt því að raða þjálfurum á næstu 3 sunnudaga. Æfingarnar hjá 8. fl. eru kl. 11:30 á sunnudögum.

Kv.

Þjálfarar

laugardagur, október 01, 2005

Sælar stelpur!
Hér koma helstu upplýsingar er varða framhaldið;

1.
Ég (Kristín) er sérlegur einkaritari Matta þar sem tæknin er ekki hans sterka hlið;) Hóp SMS og blogg er því í mínum höndum:)

2.
Matti vill hafa sér bloggsíðu með passwordi þar sem hann(m.ö.o. ég;)) setur upplýsingar um æfingasókn og annað sem engum nema ykkur kemur við.

3.
Ég gerði þessa síðu í gegnum barnaland þar sem ég kann að setja password á þær síður og því er slóðin á síðuna frekar leiðinleg. Því setti ég link á síðuna hérna hægra megin undir tengilinn "Þjálfarasíða". Passwordið fáið þið sent með sms á næstu dögum.

4.
Nákvæmari upplýsingar koma á þjálfarasíðuna.

Kv,
Matti og Kristín

This page is powered by Blogger. Isn't yours?