<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, apríl 30, 2006

Hópurinn fyrir 2. fl. leikinn á þriðjudaginn. Mæting á KR-völl kl. 18:30.

Hulda
Edda
Elísa
Kristrún
Rúna Sif
G. Helga
Helga F.
Tinna
Nanna
Erla
Ásta
Kata
Erla (3.fl.)
Sólveig (3. fl.)
Sigrún (3. fl.)

Kv.

Þjálfarar

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Nú hefst endaspretturinn fyrir sumarið. Nú eru aðeins um 3 vikur í fyrsta leik í 1. deild og er mjög mikilvægt að mæting sé virkilega góð á æfingar. Þó að þið séuð í lokaprófum þá er alltaf ágætt að taka smá hlé frá bókum og taka klukkutíma æfingu með okkur. Ef þið mætið illa á æfingar þá spilið þið ekki, mjög einfalt. Einnig þurfum við að fara að auka hraða og tempó á æfingum.

Annars eru æfingar næstu 2 vikur þannig:

Þriðjudagur (2. maí) - Leikur 2. fl. gegn KR á KR-velli kl. 19:30. Mæting kl. 18:30.
Miðvikudagur (3. maí) - Æfing í Egilshöll kl. 18-19.
Föstudagur (5. maí) - Leikur m.fl. gegn ÍR í Egilshöll kl. 19:00. Mæting kl. 18:00.
Mánudagur (8. maí) - Æfing í Egilshöll kl. 18-19.
Miðvikudagur (10. maí) - Æfing í Egilshöll kl. 18-19.
Fimmtudagur (11. maí) - Æfing í Egilshöll kl. 18-19.
Föstudagur (12. maí) - Æfing í Egilshöll kl. 17-18.

Kv.

Þjálfarar

laugardagur, apríl 22, 2006

Hópurinn fyrir leikinn gegn Fylki á mánudaginn. Mæting kl. 19:00 á Fylkisvöll. Leikur byrjar 20:00:

Ólöf P.
Hrafnhildur
Edda
Rúna Sif
Hrefna
Helga F.
Kristín
Ásta
G. Helga
Elín
Guðný J.
Helena
Kata
Sonný
Vala
Guðný Á.

Næstu æfingar verða á þriðjudaginn kl. 20:00 á Fylkisvelli og á fimmtudaginn kl. 18:00 á Fylkisvelli einnig.

Kv.

Þjálfarar

miðvikudagur, apríl 19, 2006

ATHUGIÐ BREYTING Á ÆFINGATÍMA!!

Fimmtudaginn 20. apríl (Sumardaginn fyrsta) æfum við í Egilshöll kl. 15:30-16:50.

Vinsamlegast komið þessum upplýsingum áleiðis. Næsta æfing verður svo á föstudaginn 21. apríl kl. 17:20.

LEIKUR Í DEILDARBIKAR Á MÁNUDAGINN 24. APRÍL GEGN FYLKI Á FYLKISVELLI KL. 20:00. MÆTING KL. 19:00. HÓPURINN TILKYNNTUR UM HELGINA.

Að lokum óskum við Elísu Pálsd. til hamingju með daginn, orðin 18 ára stúlkan!!

Kv.

Þjálfarar

sunnudagur, apríl 16, 2006

Sæl allar. Við Matti viljum þakka La Manga förum fyrir frábæra ferð og virkilega ánægjulega samveru. Þið stóðuð ykkur stórvel og það var sönn ánægja að eiga þennan tíma með ykkur, við bæði æfingar og annað.

Annars er planið fyrir vikuna 18-22 apríl þannig:

Þriðjudagur, 18. apríl - LEIKUR hjá 2.fl. gegn Þrótti á Fylkisvelli kl. 19:30. Mæting kl. 18:30.
Fimmtudagur, 20. apríl - Æfing á Fylkisvelli kl. 18:00.
Föstudagur, 21. apríl - Æfing með 3.fl. í Egilshöll kl. 17:20.

Hópurinn gegn Þrótti er eftirfarandi:

1. Hulda
2. Edda
3. Kristrún
4. Tinna
5. Elísa
6. Ásta
7. Erla
8. Hrefna
9. G. Helga
10. Helga F.
11. Rúna Sif
12. Nanna
13. Kata

Kv.

Þjálfarar

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Sæl, við fáum engin ferðagögn frá ferðaskrifstofunni, heldur eitt bókunarnúmer fyrir hópinn. Þið þurfið þá ekki að hafa áhyggjur af því að gleyma eða týna flugmiðanum!!

Ef þið eruð ekki búnar að greiða 3.300 kr. enn, þá vinsamlegast gera það hið snarasta. Núna eru 9 af 18 búnar að borga þetta. Við getum rætt þetta nánar eftir æfingu á morgun og þá munum við dreifa á ykkur punktunum góðu + dagskrá vikunnar (í grófum dráttum).

Kv.

Þjálfarar

Athugið, ég ætti að fá endanlegar upplýsingar frá ÍT ferðum í dag. Um leið og þær berast þá kem ég þeim áleiðis. Við stefnum að því að hafa æfingu á morgun og vonandi getum við dreift fatnaði og flugmiðum til ykkar strax eftir æfingu. Hér eru annars helstu atriðin v/ ferðina:

Komutími í Keflavík - 05:30 (farið í loftið 07:30). EKKI VERA SEIN ÞVÍ VIÐ TJÉKKUM OKKUR INN SAMAN!!!!
Vegabréf - Munið að hafa gild vegabréf meðferðis. EKKI GLEYMA ÞVÍ HEIMA!!!
Gjaldeyrir - Evra
Fatnaður - Taka með sér æfingafatnað (nokkra boli, sokka og helst stuttbuxur). Vera síðan með "casual" fatnað.
Skór - Fótboltaskó, hlaupaskó, gervisgrasskó og inniskó
Greiðslukort - Gætið þess að gildistími sé í lagi. Munið leyninúmer
Tryggingar - Leikmenn þurfa að tryggja sig sjálfir. Takið með tryggingaskírteini.

Við munum taka með eina búningatösku.

Sjáumst á morgun.

Kv.

Þjálfarar

mánudagur, apríl 03, 2006

Sælar, planið fyrir vikuna er ekki alveg fastmótað. Það sem vitað er er eftirfarandi:

Mánudagur, 3. apríl - Æfing í Egilshöll kl. 17:20-18:30 með 3. fl. Athugið breyttan tíma. Engin leikur hjá 2. fl.
Þriðjdagur, 4. apríl - FRÍ
Fimmtudagur, 6. apríl - Æfing á Fylkisvelli kl. 18:00-19:00.
Föstudagur, 7. apríl - FRÍ (pakka ofan í töskur!!)

Við munum kalla til fundar í vikunni og dreifa farmiðum og fatnaði. Vitum ekki alveg hvenær þó. Við látum ykkur vita.

Síðan verður mæting í Keflavík þann 8. apríl kl. 05:30.

Kv.

Þjálfarar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?