<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Athugið! Breyting hefur orðið á leikvelli úrslitaleiks. Leikurinn verður á Leiknisvelli kl. 12:00 á sunnudag.

Ráðið

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Jæja til hamingju stúlkur með að ná markmiðinu að komast í úrslit. Nú er seinna markmiðið eftir, að klára þetta gegn ÍR um helgina.

Miðvikudagur (30. ágúst) - Æfing 18:00
Fimmtudagur (31. ágúst) - Frí
Föstudagur (1. sept) - Æfing 18:00
Laugardagur (2. sept) - Æfing 12:00
Sunnudagur (3. sept) - ÚRSLITALEIKUR GEGN ÍR KL. 12:00 á ÍR-velli. Mæting kl. 10:45.

Kv.

Þjálfarar

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

ÞAÐ ER STAÐFEST!! Við fljúgum norður í leikinn. Eins og áður sagði, fljúgum kl. 14:00 frá Reykjavíkurflugvelli (mæting ekki seinna en 13:30). Rúta mun bíða okkar á flugvellinum á Akureyri og við verðum komin til Húsavíkur í kringum 16:00. Leikurinn er settur 17:30. Strax að leik loknum og eftir mjög snögga sturtu þá þurfum við að drífa okkur til baka til að ná flugi heim kl. 20:55. Áætluð lending í Reykjavík er í kringum 21:40.

Það er mikilvægt að þeir sem ætla EKKI að fljúga með okkur láti mig vita Í DAG (Þröstur - sms).

Eins og við ræddum í gær þá skellum við okkur í eina skemmtilega fjáröflun síðar til að hjálpa við þennan kostnað.

Kv.

Ráðið

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Planið er að fljúga norður stúlkur. Þetta er reyndar ekki 100% þar sem við þurfum að ganga frá fluginu á morgun og spurning hvort að nægilega mörg sæti séu til. Ef við fáum sætin þá yrði flogið frá Reykjavík kl. 14:00, lent á Akureyri um 14:45. Tökum rútu til Húsavíkur og verðum komin þangað í kringum 16:00.

Flug heim yrði kl. 20:55 og komin í bæinn um 21:40.

Þetta verður staðfest á morgun. Ef þetta gengur ekki upp þá er það rútan.

Kv.

Ráðið

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Til hamingju með sigurinn í A-riðli stúlkur!! Enn og aftur sýnum við karakter og náum sigri eftir að lenda undir.

Planið næstu vikuna er eftirfarandi. Þetta getur eitthvað breyst:

Fimmtudagur, 24. ágúst - Frí
Föstudagur, 25. ágúst - Æfing kl. 18:00
Laugardagur, 26. ágúst - UMSPIL gegn Völsungi kl. 17:30 á Húsavík. Sjá upp. um ferðalag hér fyrir ofan.
Sunnudagur, 27. ágúst - Þið skokkið sjálfar
Mánudagur, 28. ágúst - Æfing 18:00
Þriðjudagur, 29. ágúst - UMSPIL gegn Völsungi kl. 17:30 í Dalhúsum. Mæting kl. 16:15.
Miðvikudagur, 30. ágúst - Æfing 18:00

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Planið næstu vikur er eftirfarandi. Þetta getur breyst lítillega:

10. ágúst (fimmtudagur) - LEIKUR GEGN KFR/ÆGI á Fjölnisvelli kl. 19:00. Mæting 17:45.
11. ágúst (föstudagur) - Æfing 18:00
12. ágúst (laugardagur) - Frí
13. ágúst (sunnudagur) - Æfing kl. 17:30
14. ágúst (mánudagur) - Æfing kl. 18:00
15. ágúst (þriðjudagur) - Æfing kl. 18:00
16. ágúst (miðvikudagur) - LEIKUR GEGN ÍR á Fjölnisvelli kl. 19:00. Mæting 17:45.
17. ágúst (fimmtudagur) - Æfing kl. 18:00
18. ágúst (föstudagur) - Frí
19. ágúst (laugardagur) - Æfing 11:00
20. ágúst (sunnudagur) - LEIKUR GEGN HAUKUM að Ásvöllum kl. 14:00. Mæting upp í Dalhús kl. 11:20 í smá snakk og stemmara. Förum síðan saman á leikinn að Ásvöllum. Þetta er síðasti leikur okkar í deildinni!!
21. ágúst (mánudagur) - Æfing 18:00
22. ágúst (þriðjudagur) - VISA Bikar leikur gegn Breiðablik kl. 19:15. Meira síðar.

Eins og áður sagði, þá getur þetta plan breyst eitthvað. Eftir Verslunarmannahelgina hefst endaspretturinn hjá okkur og við skulum því halda okkar striki og vera með einbeitinguna í lagi.

Kv.

Þjálfarar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?